Studio Rún er hönnunar- og arkitektúrstofa sem leggur áherslu á vandaða, heildstæða hönnun þar sem samspil manns og umhverfis er í forgrunni. Við nálgumst hvert verkefni með opnum huga og skýrri sýn – að skapa byggingar sem endurspegla þarfir notenda, hafa framtíðarsýn, virða staðaranda og lifa í sátt við umhverfi sitt.

Studio Rún sérhæfir sig í arkitektahönnun og ráðgjöf fyrir nýbyggingar, endurgerðir eldra húsnæðis og viðbyggingar. Markmið okkar er að byggja upp farsælt samstarf við viðskiptavini okkar með fagmennsku og persónulegri ráðgjöf að leiðarljósi.

Við tökum að okkur hönnun og þróun íbúðarhúsnæðis af öllum stærðum og gerðum, þar á meðal fjölbýlishúsa, raðhúsa, parhúsa, einbýlishúsa og sumarhúsa. Einnig tökum við að okkur hönnun atvinnu- og skrifstofuhúsnæðis.

Við hjálpum viðskiptavinum okkar að láta drauma um framkvæmdir verða að veruleika með lausnum sem þróaðar eru í nánu samstarfi og sniðnar að þörfum hvers verkefnis.

Við sjáum um umsóknir byggingarleyfa, aðaluppdrætti og séruppdrætti arkitekta. Við bjóðum einnig upp á innanhús- og lóðahönnun.

Vilt þú fá frítt verðmat í verkefnið þitt?

Sendu okkur línu á info@studiorun.is og við svörum þér við fyrsta tækifæri

ÞAR SEM HUGMYNDIR TAKA FORM